30júlí

Phoenix, rise from the ashes.

Góðan dag!

Ég hef hér með tekið þá ákvörðun að prófa að gera eina bloggfærslu eða svo. Ég var að fara í gegnum gömul blogg hjá Kitty og Guggu, og það rann upp fyrir mér að blogg eru svolítið skemmtileg. Ragnar Stormsker t.d. heldur uppi allveg brilljant bloggi. Ég get nú ekki lofað ég komi fram með eitthvað í hálfkvisti við það sem hann er að skrifa, en kannski eina heimspekilega umræðu eða tvær.
Talandi um það, þegar ég var að skoða gamlar bloggfærslur hjá mér á blog.central.is/pink_sirensong (hehe) þá tók ég eftir einni heitri umræðu um fíkniefni, og þar var allskonar fólk að koma rökum á framfæri, með og á móti. Færslan sjálf var frekar biased, og alls ekki sanngjörn. Þannig ég ætla að endurskrifa hana hér og nú.
Skv. skilgreiningu english thesaurus á orðinu ,,drug" ;
1. a. A substance used in the diagnosis, treatment, or prevention of a disease or as a component of a medication. b. Such a substance as recognized or defined by the U.S. Food, Drug, and Cosmetic Act.
2. A chemical substance, such as a narcotic or hallucinogen, that affects the central nervous system, causing changes in behavior and often addiction.
3. Obsolete A chemical or dye.
Skilgreiningin er í sjálfu sér ekki allsvakalega neikvæð. Ég vil einnig taka fram að mér finnst gras og það sem við tölum um sem ,,dóp" í daglegu tali ekki vera sami hluturinn. Platón sagði að lífshamingjunni yrði náð með því að haga lífi sínu eftir ,,moderation", þ.e. finna jafnvægispunktinn milli of mikið og of lítið. Mér finnst það gildi líka um gras. Læknisrannsóknir hafa sínt að það hjálpar til gegn gláku og þess háttar sjúkdómum. Of mikil neysla hefur að sjálfsögðu neikvæð áhrif, en þá er málið að tekið er of mikið, ekki vegna eðli efnisins sem slíks. Hass, heróín, meskalín og allt þetta dót sem er mjög líklegt til að valda fíkn finnst mér að maður eigi hinsvegar að forðast sem heitann eldinn.
Niðurstaða þessarar stuttu greinar; gras er í kei í hóflegu magni, hitt er ógó :)

Þetta var pínu gaman, more to come!

Out

30. júlí 2009 klukkan 11:00
Ađalsteinn Vestmann
Almennt
4 athugasemdir
26ágúst

Versló/Gay Pride/Menningarnótt

Þetta verður stutt yfirlit yfir allar þessar helgar, sem að komu allar í röð, það var sko kátt á hjalla!

Verslunarmannahelgin var ekkert allsvakalega spez, fyrst og fremst útaf þessari asnalegu löggjöf sem var sett á hátíðina. Fólk var með misjafnar skoðanir, en ég held því fram að þetta verði ekki svona á næsta ári; það var miklu skemmtilegra þá. Atli kisi, Begga og fleiri komu frá Rvk, og ég held svei mér að þeim hafi ekki verið eins skemmt og þau bjuggust við. Palli klikkaði samt ekki og miðað við að ballið var fyrir 16 ára þá var ekkert smá gaman!

Gay Pride var hápunktur sumarsins. Ég fór á fimmtudeginum ásamt góðum ferðafélögum Steinari og Huldu, og sú ferð var kynngimögnuð, góð tónlist og heimagerðar samlokur, ásamt einstaka harðfisk, unaðslegt. Föstudagurinn fór svo þannig að ég fór með Hildi systur, Dóru og Villa á Kaffibrennsluna og áttum við þar indælisstund við spjall og kaffidrykkju. Um kvöldið hitti ég svo elsku Bjarka minn og Venna, en fór frá þeim að hitta Alexöndru og Geoff vin hennar frá USA. Saman fórum við á 11na og skemmtum okkur konunglega, og ég fékk að krassa hjá henni þá nótt. Laugardagurinn var æði, gangan var svo skemmtileg. Ég tróð mér uppá pall með Aldísi, Huldu og Maríu og flögguðum við því hvað við erum stolt að vera til. Síðan um kvöldið fór ég með Dögg (sem er mesta yndi heims) og Adda vini á Q-Bar þar sem við slettum úr klaufunum! Pikkuðum líka upp Austurríkismann sem að var voða einmana, og ég hef innritað hann í minn vinahóp, sem er til lukku. Gay ballið á NASA var brjálæði, það var svo mikið af fólki og svo þvílíkt mikið stuð. Sunnudagurinn fór svo í það að sýna Georg Reykjavík, en hann hafði flutt þangað á miðvikudeginum og vissi ekki neitt um neitt.

Menningarnóttin var ekki síðari. Ég fór í þá reisu með Kitty, Ingva, Rítu, Steina og Bittu. Við djömmuðum samt voða sitt á hvað eitthvað, þannig ég var hoppandi á milli miðbæjarins og Q-Bar. Ég mæti klárlega aftur næsta ár. Svo má nefna að ég fór á Vegamót með Hildi systur og við sáum víst einhvern frægan (HOT) leikara. Gaman að því.

Svo er Rhodos eftir bara nokkra daga. Vá ég get ekki beðið!!
26. ágúst 2007 klukkan 01:05
Ađalsteinn Vestmann
Almennt
1 athugasemd
26júlí

Fyrirsögn

Vildi bara deila því að ég var að rífast við strák í netheimum um samkynhneigð. Strákurinn vildi meina að samkynhneigðir strákar væru helsyndugir, ógeðslegir og óhreinir. Þeir stunduðu ógeðfelt kynlíf sín á milli og að þeir ættu ekki að sjást opinberlega hver með öðrum. Ég spurði sá hin sama hvers vegna þeir væru syndugir. Hann svaraði með því að orð Guðs segðu það skýrt og greinilega.
Það hefur verið farið í gegnum þetta margoft. Það er ekki sannað að Biblían sé orð Guðs. Væri hún það, þá væru hvort eð er ekki hægt að taka mark á henni í dag útaf 2 ástæðum;
1) Gildisreglurnar í henni koma frá öðrum tímum, ævafornum meira að segja. Það er ekki hægt að ætlast til þess að þær geti verið viðmið hjá nútímamönnum, vegna þess að við lifum við allt aðrar aðstæður í dag.
2) Biblían hefur verið ummorðuð og umskrifuð af svo mörgum mönnum og svo oft að það sem hún átti að standa fyrir hefur misst frummerkingu sína. Orð Guðs hefur ábyggilega á vígamestu stöðum hennar verið skipt út fyrir orð Mannsins.
Einnig útskýrði ég fyrir honum að samkynhneigð er orðinn hluti af mannlegu, nútímalegu samfélagi, allveg eins og svartir. Nýjir tímar boða breytingar, og með tilkoma mannréttindasáttmálans hefur hver og einn rétt á að vera til. Tilvera er réttur. Ef samfélagsþegn getur ekki lifað með samkynhneigðum eða svörtum þá getur hann ekki fúnkerað með samfélaginu. Fordómar eru alltaf rangir, sama á hvaða grundvelli þeir eru teknir. í orðabók er skilgreiningin á fordómar; "Afstaða tekin á grundvelli bjagaðra eða rangmætra upplýsinga."

Ég segi að svona fólk ætti að taka sig saman í andlitinu og sætta sig við nútímasmfélag, eða hreinlega færa sig um set og fara aftur í hella, því við erum svo sannarlega ekki að fara neitt!
26. júlí 2007 klukkan 18:49
Ađalsteinn Vestmann
3 athugasemdir
23júlí

Random

já ... ég hef ekki mikið að segja þessa dagana. Ég fór á Power sýningu á Transformers í gær. Geðveik mynd! Mæli hiklaust með henni. Elska eyðileggingu bara yfir höfuð. Eitthvað svo ... exótískt við hana.

Svo fer ég á Harry Potter á eftir. Hlakka til þess að sjá hana. Skilst að hún hafi fengið góða dóma, en aftur á móti slæma líka. Það er að segja ; þeir sem lásu bókina fannst of mörgu sleppt. Við hverju er hægt að búast miðað við hvað þetta er þykk bók!?

Allir að koma í Pennan Eymundsson í miðbænum! Það er magnað hvað þetta er orðið flott, ekki fullklárað en samt.

Lifi
23. júlí 2007 klukkan 19:14
Ađalsteinn Vestmann
Engin athugasemd
22júlí

Viđurnefniđ Siren

Vegna spurninga varðandi þetta viðurnefni hef ég ákveðið að koma með ítarlega útskýringu í eftirfarandi bloggi. Ég kem aftur að því!
22. júlí 2007 klukkan 14:36
Ađalsteinn Vestmann
Engin athugasemd
06júlí

Varđandi kökugjafir

Vegna þess hve mikið ég ásældist að vera kallaður mínum réttmæta titli, þá gaf ég loforð um kökur. Það skal tekið fram að því líkur hér og nú :) Þeir sem ég skulda köku eru eftirfarandi;

Gunni Prest
Ingibjörg Dóra
Lára kennari

Ég skal lofa því að afhenda kökurnar eins fljótt og auðið er, kannski ég bjóði ykkur öllum í glam-kaffiboð?

Að sinni!
06. júlí 2007 klukkan 00:38
Ađalsteinn Vestmann
2 athugasemdir
01júlí

Áframhaldandi afturhaldssemi!

Ég er kominn aftur með internet í tölvuna mína! Praise the Lord!
01. júlí 2007 klukkan 18:33
Ađalsteinn Vestmann
Almennt
1 athugasemd
17júní

Helgin ţegar 17.Júní var

Ég vil taka það fram fyrst af öllu að ég þoli ekki bíladaga! Chaos af bílum og fullum föntum, ógeðslegt. En það eina góða er það að það kemur fullt af fólki from all over the place sem manni þykir vænt um (gay).
Það sem kom mér mest og skemmtilegast á óvart var að rekast fyrir algera tilviljun á Steina SMH labbandi niður Oddeyrargötuna framhjá húsinu hennar Helgu þar sem við vorum flest öll. Svo langt síðan maður hefur séð hann, og hann hættir bara ekkert að stækka! Ég fékk viðurnefnið Addi AMH (Addi með hárið) hjá vinum hans, og mér finnst það alger heiður:)
Síðan sá maður aðeins glitta í Reyni, sem var minna heldur en ásættanlegt, beiler! Síðan kom Regína, Addi hafnafjörður og Ingvi frændi. Fullt af öðru fólki líka sem Kitty og Gugga þekkja en ég ekki (og sumir sem ég prísa mig sælann fyrir að þekkja ekki). Það voru slagsmál niðrí bæ, smá heima hjá Helgu ooog ábyggilega hellings annars staðar líka, bíladagar at its finest.

nenni ekki meir, to be continued!
17. júní 2007 klukkan 20:28
Ađalsteinn Vestmann
2 athugasemdir
05júní

Greetings Earthlings!

Since I'll be going to an English exam in about 40 minutes, I decided to blog in english. The exams have been going sufficiently so far. I don't expect any great grades, since I haven't been trying as hard as I should've. That'll just mean that the 4th year will be exquisite, I promise.
As soon as the last exam will be finished, next friday actually, then I'll start working for real. I've been working all weekends during my exams, they better pay me good money. All shifts will be from 9-18 in Bókval Hafnarstræti or 10-18:30 in Penninn Glerártorgi and I don't know how the weekends will be. I'm going to be needing alot of money in Rhodos! And I don't intend to be like in Paris.... borrowing money from Svava haha! :-)

Rhodos will be awesome!
05. júní 2007 klukkan 12:11
Ađalsteinn Vestmann
3 athugasemdir
31maí

Eftirmálar

Ég fékk reality check um daginn. Ég er að verða búinn með MA. Ég hélt alltaf að það væri beinn vegur eftir MA hjá mér, nefnilega HÍ og kennsluréttindi og svo setjast að. Ég er hinsvegar núna að pæla í að fara í University of Edinburgh. Það er boðið uppá að fara sem svona international student í Erasmus prógrammi í HÍ. Það er boðið uppá afar skemmtilegt nám í Klassískri sögu og fornaldarsögu Rómverja/Grikkja í þessum háskóla, að ég tali nú ekki um að námsefnið er á ensku. Mér skilst að þetta fari þannig fram að ég klári 1-2 ár í HÍ, flytjist svo út og verði þar í tvö misseri, og það sé síðan metið í HÍ. Síðan er bara spurning hvort ég vilji bæta á mig MA gráðu í sagnfræði og taka síðan kennsluréttindi, eða M.Paed.gráðu sem veitir mér strax kennsluréttindi? Þetta verður allt ákveðið á næsta ári.

Lífið er rétt að byrja :)
31. maí 2007 klukkan 15:07
Ađalsteinn Vestmann
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ađalsteinn Vestmann
  • Kennitala: 0409882629
  • Netfang: sirens.seduction@hotmail.com
  • Stađur: Eyjafjarđarsveit
  • Heimilisfang: Norđurgata 43
  • Símanúmer: 8484684
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi, Afgreiđslumađur hjá Pennanum-Eymundsson
  • Hjúskaparstađa: Einhleypur
  • Um mig: Samkynhneigđur einstaklingur, uppfullur orku og skemmtilegheita međ fóbíu fyrir köngulóm, međ fýsn í ađ hitta nýtt og skemmtileg fólk!
  • Annađ: Ţeir sem kalla mig drottningu Akureyrar fá köku =]

Klukkan